Matís mun nk. miðvikudag, 5. nóvember, kl. 13 opna matvælasmiðju að Álaleiru 1 á Hornafirði. Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra mun opna smiðjuna auk þess sem boðið verður upp á léttar veitingar.
Matís ohf. og Landbúnaðarháskóli Íslands hafa leitað leiða til að nýta íslenskt bygg til manneldis. Það er Framleiðnisjóður landbúnaðarins sem hefur styrkt þetta starf. Niðurstöðurnar verða kynntar á málþingi í húsi Landbúnaðarháskóla Íslands á Keldnaholti 31. október nk.